Jóla Carte D‘or Cremé Brûlée
Hver fílar ekki klassíska rétt með smá jóla ívafi? Venjulegt Cremé brûlée er æði en Appelsínu-kanil cremé brûlée er hin fullkomna jólablanda.
Appelsínu-kanil cremé brûlée fyrir 10
Léttmjólk 600 ml
Rjómi 600 ml
Appelsínubörkur 15 g
Kanilstangir 20 g
Carte D‘or Cremé Brûlée 130 g
– Hitið mjólk, rjóma, appelsínubörk og kanilstangir við meðalhita. Þegar að suðan er komin takið blönduna af hitanum og hvílið í 30 mínútur.
-Setjið Carte D‘or Creme Brulée blönduna í pott og hrærið rjómablöndunni hægt og rólega saman við. Þegar að blandan er öll komin út í hitað þá búðinginn í 2 mínútur og hrært vel saman.
-Takið kanilstangirnar úr blöndunni, setjið hana í form að eigin vali og í kæli. Creme Bruléeið stífnar í kælinum!
-Takið Creme Bruléeið út úr kæli 30 mínútum áður en það er borið fram.
-Stráið sykrinum yfir og brennið þar til hann er fallega karamellaður. Skreytið að vild og berið strax fram.