Fréttir

Takk fyrir komuna! Stóreldhúsasýningin 2024

Starfsfólk Ekrunnar þakkar öllum þeim sem lögðu leið sína á básinn okkar á Stóreldhúsasýningunni í Laugardalshöll 31. október og 1. nóvember.  

Að þessu sinni lögðum við áherslu á að sýna brotabrot af okkar fjölbreytta vöruúrvali, hvort sem það séu tómatvörur, soð, krydd, majónes, kaffi, te eða ferskvara. Einnig buðum við upp á léttar veitingar frá Segafredo og Til hamingju ásamt því að dreifa veglegum gjafapokum með vörum frá Pons, Kikkoman, Rosso, Maldon og fleiri góðum birgjum. Takk fyrir komuna, við hlökkum til að sjá ykkur á næstu sýningu!